31.5.2015 | 20:56
Adda Guðrún útskrifast
Adda Guðrún, barnabarnið okkar útskrifaðist í gær ú MR. Hún var glæsileg með húfuna sína. Hún bauð til 70 manna veizlu sem tókst með miklum ágætum. Veður var hið blíðasta eins og við var að búast í´mínum gamla bæ, Hafnarfirði.
20.5.2015 | 12:11
Nýtt blogg
Ágætu vinir og félagar.
Mér til yndis stofnaði ég nýtt blogg hér á MBL.IS í dag, 20. maí 2015. Veit svo sem ekki hvað ég verð aktívur hér á bloggi, er orðinn latur við að skrifa!
Hef gaman af að fylgjast með pólitíkinni en sú tík er oft skemmtileg, ekki sízt nú þegar allt er uppi í loft á Alþingi. Hægri stjórnin hefur enga samúð hjá mér.
Var um tíma í Framsóknarflokknum, sat meira að segja um tíma í miðstjórn flokksins og einnig landsstjórn. Það er nú liðin tíð. Nú lízt mér bezt á VG eða jafnvel Pírata. Hvorn þeirra ég kýs veit ég svo sem ekki enda ekki nauðsyn að taka afstöðu til þess nú, það getur beðið í tvö ár!!
Í gær horfðum við hjón á Eurovision og var nokkuð gaman að fylgjast með. Ég var ósáttur við að Danir skyldu falla út. Hef alltaf fylgzt með þeim á Euro og verið þeim hlynntur. Þá átti ég einnig von á að þeir myndu gefa henni Maríu okka stig en hún keppir á morgun, fimmtudag. Það verður gaman!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar